Sjólag.is er upplýsingavefur Vegagerðarinnar fyrir sjófarendur við Ísland. Þar birtast bæði mæligögn og spár sem koma frá Vegagerðinni, Veðurstofu Íslands og Evrópsku veðurstofunni. Kortagrunnurinn byggir á gögnum frá Landmælingum Íslands og OpenStreetMap.
Gögn frá mælitækjum eru aðgengileg í opnum vefþjónustum á gagnaveita.vegagerdin.is.
Mæligögn, svo sem frá veðurstöðvum og ölduduflum, eru birt sjálfvirkt og eru ekki yfirfarin áður en þau birtast á kortinu. Þau eru því sett fram með fyrirvara um að skekkjur geti komið fyrir.
Athugasemdir, hugmyndir eða ábendingar um þróun sjolag.is má senda á netfangið:
vegagerdin@vegagerdin.is
Vefurinn sjolag.is notar vafrakökur í tæknilegum tilgangi til að tryggja virkni vefsins og bæta notendaupplifun. Með vafrakökum er hægt að muna val og stillingar notenda á milli heimsókna, svo sem flýtileiðir og stillingar á framsetningu viðmóts.
Vafrakökurnar sem notaðar eru eru nauðsynlegar fyrir virkni vefsins og fela ekki í sér söfnun persónugreinanlegra upplýsinga. Gögnin eru hvorki notuð í markaðslegum tilgangi né deilt með þriðju aðilum.
Notendur geta stjórnað eða eytt vafrakökum í gegnum stillingar í vafra sínum. Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga má finna í persónuverndarstefnu Vegagerðarinnar.